Yngri spilarar byrja eftir jólafrí 11.janúar

fimmtudagur, 5. janúar 2006

Yngri spilara æfingar eru á miðvikudögum Síðumúla 37, 3.hæð. Byrjum aftur eftir jólafrí 11.janúar.

kl. 18:00 - 19:30 eru léttar æfingar og spjall.

kl. 19:30 - 22:30 er spilaður tvímenningur eða sveitakeppni. Spilað um bronsstig!

Þátttaka er ókeypis!

Tilvalið fyrir þá sem hafa stigið sín fyrstu skref t.d. í heimahúsum eða á bridgenámskeiðum í framhaldsskólum og vilja læra meira og æfa sig að spila. Létt og skemmtileg stemning.

Nánari upplýsingar hjá Bridgesambandinu í síma 587-9360. Sjá einnig heimasíðu yngri spilara: http://www.bridge.is/felog/reykjavik/bridgefelag-yngri-spilara/

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar