Yngri spilarar byrja eftir jólafrí 11.janúar
fimmtudagur, 5. janúar 2006
Yngri spilara æfingar eru á miðvikudögum Síðumúla 37, 3.hæð. Byrjum aftur eftir jólafrí 11.janúar.
kl. 18:00 - 19:30 eru léttar æfingar og spjall.
kl. 19:30 - 22:30 er spilaður tvímenningur eða sveitakeppni. Spilað um bronsstig!
Þátttaka er ókeypis!
Tilvalið fyrir þá sem hafa stigið sín fyrstu skref t.d. í heimahúsum eða á bridgenámskeiðum í framhaldsskólum og vilja læra meira og æfa sig að spila. Létt og skemmtileg stemning.
Nánari upplýsingar hjá Bridgesambandinu í síma 587-9360. Sjá einnig heimasíðu yngri spilara: http://www.bridge.is/felog/reykjavik/bridgefelag-yngri-spilara/