KEA hangikjöt í húsi
fimmtudagur, 22. desember 2005
Jólatvennu B.A. lauk þriðjudaginn 20.desember en þar var
spilað um hangikjöt og magál frá Norðlenska. Spiluð voru tvö
aðskilin kvöld þar sem betra skorið gilti til verðlauna. Stærsta
hnossið hrepptu Haraldur Sigurjónsson og Frímann Stefánsson eftir
góða frammistöðu fyrra kvöldið.
1. Haraldur - Frímann 60,2%
2. Hans Viggó Reisenhus - Gissur Jónasson 58,3%
3. Ævar Ármannsson - Árni Bjarnason 57,4%
4.-5.Kári Gíslason - Sigfús Hreiðarson 57,0%
4.-5. Gylfi Pálsson - Helgi Steinsson 57,0%
Viggó og Gissur reyndust með besta meðalárangur en þeir urðu í
2.sæti fyrra kvöldið og efstir það síðari. Brynja Friðfinnsdóttir
og Ólína Sigurjónsdóttir fengu verðlaun sem besta
kvennaparið.
Að lokum óskum við öllum okkar kæru spilurum gleðilegra jóla,
árs og friðar og minnum á Íslandsbankamótið sem fram fer
föstudaginn 30.desember kl. 17:30 á Hótel KEA.