Fréttir frá BA
fimmtudagur, 8. desember 2005
Nú er nýlokið þriggja kvölda hraðsveitakeppni Sparisjóðs
Norðlendinga en Sveinar sem reynar héldu fyrsta sætinu þrátt fyrir
nokkra dýfu í lokaumferðunum þar sem þeir töpuðu m.a. stórt fyrir
Unaði jóna.
1. Sveinar sem reyna +181
2. Unaður jóna +166
3. Ævarandi árnaðaróskir +85
4. Stefán Vilhjálmsson
5. Sveinbirningar
6. Heiðbrún lillabinna
Sveinarnir styrktu reyndar sveitina með sterkum erlendum
kvenspilara síðasta kvöldið sem var þeirra sterkasti leikmaður það
kvöldið.
Þeir söknuðu þó skáldsins, Björns Þorlákssonar sem er annar af
a.m.k. tveimur bridgespilurum sem gefa út bók fyrir þessi jól og
var með upplestur um kvöldið.
Bók Björns kallast Lífsloginn en einnig mun Jón Þorvarðarson
vera að gefa út bók um sögu stærðfræðinnar
Sunnudaginn 4.desember voru efstu pör svo jöfn að eitt spil
hefði getað breytt öllu um röðina:
1. Reynir Helgason - Hans Viggó Reisenhus +11
2. Magnús Magnússon - Kári Gíslason +9
3. Stefán Vilhjálmsson - Haukur Jónsson +7
Næsta mót á þriðjudögum er tveggja kvölda
Hangikjötstvímenningur þar sem má mæta annað eða bæði kvöldin
þar sem aðeins betra kvöldið mun telja.