Lög um Meistarastig

Almenn keppnisreglugerð fyrir Íslandsmót.

Eftirfarandi reglur gilda frá 1.janúar 1991 og eru í flestu eins og Svíar, Danir og Norðmenn styðjast við.

Meistarastig eru gull, silfur og brons. 1 Mst.= 1 gull = 10 silfur = 100 brons.
Spilurum sem unnið hafa til meistarastiga er skipt í fimm flokka . Þeir eru :

  / Félagsmeistari með fleiri en 2 Mst.
  / Héraðsmeistari með fleiri en 15 Mst.
  / Svæðismeistari með fleiri en 50 Mst.
  / Landsmeistari með fleiri en 150 Mst.
S    / Stórmeistari með fleiri en 500 Mst. og minnst 250 gullstig


Skráning og úthlutun meistarastiga

Meistarastigum Bridgesambands Íslands er úthlutað í opnum keppnum, sem haldnar eru á vegum B.S.Í., svæðasambanda eða félaga innan þess samkvæmt eftirfarandi reglum :


Bronsstig

Bronsstigum er úthlutað í innanfélagskeppnum samkv. reglum sem fylgja hér á eftir. Forráðamenn félagana eru ábyrgir fyrir skilum á skýrslum yfir þessar stigagjafir til B.S.Í og skal notast við eyðublöð sem B.S.Í hefur látið gera, en einnig má notast við sambærilegt form. Mikilvægt er að á skýrslunni komi fram fullt nafn spilara ásamt kennitölu. Skiladagar eru tveir á ári hverju, 10. janúar og 10. júní.

Bronsstigatafla

Silfurstig

Silfurstigum er úthlutað í svæðamótum og sérstökum opnum keppnum á vegum svæðasambandana eða einstakra félaga. Skilyrði fyrir úthlutun silfustiga í mótum á vegum einstakra félaga er að mótið sé opið öllum og að þátttakendur séu frá minnst fimm aðildarfélögum B.S.Í., þar af minna en 50% spilara frá sama félagi, ekki fleiri en 70% frá tveimur félögum og minna en 90 frá þremur félögum. Heimild er fyrir Meistarastiganefnd að veita undanþágu frá þessu skilyrði ef um sérstakar aðstæður er að ræða. Lágmarsfjöldi para er tólf og ekki skal spila færri spil en 32, þó má spilafjöldinn vera minnst 38 ef um einmenningskeppni er að ræða. Einungis félög innan B.S.Í. eiga rétt á að halda silfurstigamót, þó ekki oftar en fimm sinum á ári hvert félag. Sömu reglur gilda um skil á skýrslum v/silfurstiga og bronsstiga, nema hvað varðar eyðublaðið sem er örlítið frábrugðið bronsstigaskýrslunni.
Greiða þarf sérstaklega fyrir skráningu silfurstiga og er það gjald frá og með 1.janúar 2001:
1 dagsmót 200 kr/spilara
2ja daga eða helgarmót (fös-sun), bikarkeppni svæða 250 kr/spilara
Mót sem er lengra borgar að auki 200/dag, að hámarki 500 kr/spilara
Sérstök silfurstigamót innan félaga sem spiluð eru á spilakvöldum viðkomandi félags greiða 200 kr/hvert kvöld.

Greiðsla fyrir silfurstig skal fylgja skráningarskýrslu hverju sinni og verða stig sem ekki hefur verið greitt fyrir, eigi færð fyrr en að greiðsla hefur borist.

Silfurstigatafla


Gullstig

Gullstigum er úthlutað í Íslandsmótum og sérstökum mótum sem meistarastiganefnd samþykkir. Til þess að mót sé gilt til úthlutunar gullstiga skal fjöldi para vera minnst 32 og spilafjöldi minnst 82.


Almennt um meistarastig

Það gildir almennt að séu pör jöfn í sætum sem gefa meistarastig, skal skipta heildarstigafjöldanum á milli þeirra. Til þess að hljóta stig í ákv. keppni, verður spilari að spila minnst helming af spilunum í viðkomandi lotu eða umferð sé um tvímenningskeppni að ræða, en til þess að eiga rétt á uppbótarstigum fyrir sveitakeppni verður spilari að spila minnst þriðjung leikja í viðkomandi móti. Þetta ákvæði gildir um öll mót, þ.m.t. Íslandsmót.
Ef spilaformið er tvímenningur þar sem fjöldi para kemur í veg fyrir að öll pörin spili innbyrðis hvert kvöld eða í hverri lotu, gildir sá skali í viðkomandi töflu, sem fæst með því að leggja saman 1 + fjölda para sem hvert par spilaði við + helming hinna parana. Dæmi :
Í 50 para tvímenning eru spilaðar 7 umferðir á kvöldi. Þá fæst : 1 + 7 + 1/2(42) = 29, sem þýðir að stigagjöf er miðuð við að pörin séu 29 og allir spili við alla.
Bridgesamband Íslands skuldbindur sig til þess að halda öllum gögnum varðandi meistarastig til haga í a.m.k. fimm ár frá skráningardegi. B.S.Í skuldbindur sig einnig til þess að halda skrá yfir áunnin meistarastig spilara og gefa hana út árlega.


Úthlutunarreglur

Reglur um bronsstig og silfurstig

Bronsstig - tvímenningur
Bronsstig - sveitakeppni,
fleiri en tveir leikir á kvöldi
einn eða tveir leikir á kvöldi
Bronsstig - einmenningur
Silfurstig - tvímenningur
Silfurstig - sveitakeppni
Silfurstig - bikarkeppni sveita
Silfurstig - hraðsveitakeppni
Silfurstig - einmenningur
Gullstig - tvímenningur, opinn flokkur
Gullstig - tvímenningur, aðrir flokkar - úrslit
Gullstig - Íslandsmót, sveitakeppni
Gullstig - Íslandsmót sveitakeppni, aðrir flokkar
Gullstig - Bikarkeppni Bridgesambands Íslands
Gullstig - Íslandsmót í einmenningi
Önnur mót á vegum B.S.Í.
Landstvímenningur
Bridgehátíð
Firmakeppni B.S.Í.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar