Bikarkeppni 2006
- Reglugerð
- Smaskrá fyrirliða
- Skorblað
- Úrslitablað/Gullstigablað
- 1. og 2. umferð
- 3. umferð
- 4. umferð
- Undanúrslit
-
Úrslit
Þrír frakkar náðu að landa næsta öruggum sigri í úrslitaleik Bikarkeppninar með 175 gegn 71 í úrslitaleik gegn Hermanni Friðrikssyni. Sveit Hermanns gaf reyndar leikinn eftir 3 lotur þegar munaði 104 impum. Spilarar í sveit Þriggja frakka voru Kristján Blöndal, Ísak Örn Sigurðsson, Ómar Olgeirsson, Steinar Jónsson, Stefán Jónsson og Valur Sigurðsson. Kristján, Ómar, Steinar og Stefán eru að vinna sinn fyrsta bikarmeistaratitil.
Þrír Frakkar: Steinar Jónsson, Ísak Örn Sigurðsson, Valur Sigurðsson,
Kristján Blöndal, Ómar Olgeirsson. Á myndina vantar Stefán Jónsson.
Sjá má leikinn hér á Bridgebase:
1.lota
2.lota
3.lota
Undanúrslit: LOKASTAÐAN
Sveit Orkuveitu Reykjavíkur gaf sinn leik eftir 2. lotu þá komnir 114 impum undir
Sveit Þriggja Frakka sigraði Garðar og vélar 168-75
Þrír Frakkar spila úrslitaleikinn við sveit Hermanns Friðrikssonar.
Leikurinn byrjar kl. 11 á sunnudag og er sýndur á Bridgebase. Áhorfendur velkomnir í Síðumúlann en leikurinn er spilaður í aðalsalnum og er einnig sýndur í sjónvarpinu í hliðarsal!
Úrslit bikarkeppni BSÍ verða spiluð helgina 23.-24. september í húsnæði BSÍ að Síðumúla 37. Í undanúrslitum verða spiluð 48 spil og eigast þar við sveitir Garða og véla-Þriggja frakka annars vegar og hins vegar sveitir Orkuveitarinnar- Hermanns Friðrikssonar. Spilamennska hefst stundvíslega klukkan 11:00 þann 23. september og lýkur upp úr klukkan 18:00.
Úrslitaleikurinn verður 64 spil á milli þeirra sveita sem bera sigur úr býtum í áðurnefndum viðureignum. Spilamennskan í úrslitaleiknum hefst klukkan 11:00 sunnudaginn 24. september en lýkur upp úr klukkan 20:00. Stefnt er að því að sýna frá báðum borðum á Bridgebase í úrslitaleiknum á sunnudaginn. Áhorfendur eru að sjálfsögðu velkomnir og hvattir til að fylgjast með skemmtilegum viðureignum.
Garðar og vélar: Símon Símonarson, Rúnar Magnússon, Einar Jónsson, Sigurður Vilhjálmsson, Júlíus Sigurjónsson, Eiríkur Hjaltason
Þrír frakkar: Kristján Blöndal, Ómar Olgeirsson, Steinar Jónsson, Valur Sigurðsson, Ísak Örn Sigurðsson, Stefán Jónsson
Orkuveitan: Páll Valdimarsson, Ragnar Magnússon, Hermann Lárusson, Þröstur Ingimarsson, Sigfús Örn Árnason, Friðjón Þórhallsson
Hermann Friðriksson: Hermann Friðriksson, Vilhjálmur Sigurðsson jr, Jón Ingþórsson, Erlendur Jónsson, Daníel Már Sigurðsson, Hlynur Angantýsson
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar