Staðan á WBT eftir 10 umferðir
þriðjudagur, 28. janúar 2025
Sveit John McAllister hefur tekið góða forystu á WBT eftir 10 umferðir, en með honum spila Adam Grossack, Ola Rimstedt og Michael Rimstedt. Efstu íslensku sveitirnar eru Grant Thornton í sjöunda sæti og Ísland 1 í tíunda sæti. Báðar þessar sveitir geta vel komist áfram í undanúrslit ef vel tekst til á morgun.
Í fyrramálið spila á 1.borði og þar af leiðandi á BBO, sveit Apres-Bridge Champs sem í spila Sabine Auken, Roy Welland, Morten Bilde, Dorte Bilde, Nicolai Heiberg-Evenstad og Nicolai Heiberg-Evenstad og sveit Shourie sem í spila ásamt honum, Gavin Wolpert, Christian Bakke, Tor Eivind Grude, Vincent Demuy og John Hurd.