Harpa Fold Ingólfsdóttir og María Bender Íslandsmeistarar
mánudagur, 17. október 2022
Þær María Bender og Harpa Fold unnu Íslandsmót kvenna í tvímenning sem var spilað um helgina. Tóku þær forystu strax á laugardagsmorgun og héldu henni til loka. Þær Ingibjörg Guðmundsdóttir og Sólveig Jakobsdóttir urðu í öðru sæti. Í þriðja sæti urðu svo Guðný Guðjónsdóttir og Rosemary Shaw eftir spennandi baráttu.
Mótið heppnaðist mjög vel í alla staði, var vel spilað og skemmtilegt.
Efstu pör urðu eftirfarandi:
- Harpa Fold Ingólfsdóttir og María Haraldsdóttir Bender með 59,89% skor
- Ingibjörg Guðmundsdóttir og Sólveig Jakobsdóttir með 57,78% skor
- Guðný Guðjónsdóttir og Rosemary Shaw með 53,56% skor
Auk þess fengu aukaverðlaun fyrir sigur í einstökum lotum þær
Anna Guðlaug Níelsen og Helga Helena Sturlaugsdóttir
Ingibjörg Halldórsdóttir og Ólöf Thorarensen
Arngunnur Jónsdóttir og Alda Guðnadóttir