Northern Lights Bridge Festival - tvímenningur
laugardagur, 3. september 2022
Northern Lights Bridge Festival sem er haldið af Bridgefélagi Siglufjarðar fór af stað með tvímenning í gær en 52 pör mættu til leiks. Mótið er minningarmót um Gunnar Birgisson.
Anton Haraldsson og Guðmundur Halldórsson tóku snemma forystuna og enduðu sem sigurvegarar. En efstu pör uðu.
- Anton Haraldsson-Guðmundur Halldórsson með 62,81%
- Aðalsteinn Jörgensen-Bjarni H. Einarsson með 60,37%
- Sævar Þorbjörnsson-Karl Sigurhjartarson með 56,74%
- Helgi Sigurðsson-Gísli Steingrímsson með 56,41%
- Sigurbjörn Haralsson-Birkir Jón Jónsson með 56,03%
Var vinningur fyrir fyrsta sæti mjög veglegur eða 500.þúsund, 320.þúsund fyrir annað sæti og 190.þúsund fyrir þriðja sæti.