J.E. Skjanni ehf leiðir sveitakeppnina
laugardagur, 3. september 2022
J.E. Skjanni leiðir sveitakeppnina á Northern Lights Bridge Festival eftir 5 umferðir. Íslenskur Landbúnaður er í 2.sæti en þessar tvær sveitir áttust við í 5.umferð þar sem Skjanni vann með 1 impa mun. En Íslenskur Landbúnaður leiddi leikinn allt þar til í síðasta spili að Skjanni stóð geim sem fór niður á hinu borðinu.
En staðan er eftirfarandi
1. J.E. Skjanni ehf 75,99 stig
2. Íslenskur Landbúnaður 72,15 stig
3. Jón Baldursson 68,89 stig
4. Hótel Norðurljós 62,29 stig
5. Myllan 61,59 stig