Frábær byrjun á EM
sunnudagur, 12. júní 2022
Opni flokkurinn átti svo sannarlega stórleik í 1.umferð á EM. Tyrkland var andstæðingurinn og fyrirfram var búist við erfiðum leik. En Ísland gerði sér lítið fyrir og gjörsigraði Tyrkland 48-10 í impum og fékk 17,85 vinningsstig. Munaði miklu um frábæran endasprett en Ísland skoraði 37 impa í síðustu 4 spilunum.
Næsti andstæðingur Íslands er hið sterka lið Svíþjóðar sem fékk 9,39 stig gegn Danmörku í 1.umferð.