Slæm umferð
laugardagur, 28. maí 2022
Ísland tapaði illa fyrir Danmörku í opna flokknum og hafa að litlu að keppa nema heiðri sínum í síðustu tveimur umferðunum á morgun.
Í kvenna flokknum tapaði Ísland fyrir unofficial liði Finnlands í leik sem mátti ekki tapast. Svíar eru með afgerandi forystu í 1.sæti en okkar lið á góða möguleika á góðum úrslitum á morgun. Spilar liðið við Danmörku og Noreg sem hafa átt erfitt það sem af er móti.