Hótel Norðurljós-nyrsta hótel landsins
Um leið og við viljum óska Hótel Norðurljósum til hamingju með sigurinn á Íslandsmótinu í sveitakeppni viljum við vekja athygli spilara á hótelinu.
Hótel Norðurljós er Raufarhöfn og er nyrsta hótel landsins. Umhverfið er algjörlega dásamlegt og eru myndir á facebook síðu hótelsins hreinlega listaverk. Á hótelinu eru 18 tveggja manna herbergi þar af eru 15 þeirra með sér baðherbergi.
Veitingastaður hótel Norðurljósa leggur sérstaka áherslu á hráefni úr héraði. Þar er auðvitað fiskur í sérstöðu auk lambakjöts beint frá býli.
Útsýnið úr veitingasal er einstakt, þaðan sést yfir höfnina þar sem er fjölskrúðugt fuglalíf.
Á sumrin er iðandi fuglalíf á höfninni, í Höfðanum og á engjunum vestan við hótelið. Á góðum degi hafa verið greindar yfir tuttugu fuglategundir út um glugga á hótelinu og nær sextíu tegundir innanbæjar á Raufarhöfn
Facebook síða hótelsins er.