Ölfus og Bridgesambandið í samstarf
miðvikudagur, 23. mars 2022
Ölfus og Bridgesambandið í samstarf
Ölfus hefur boðið Bridgesambandinu að úrslitin í sveitakeppninni verði haldin í Versölum 21.-24. apríl. Það er eitt af markmiðum Bridgesambandsins að kynna bridge um land allt og er það mjög spennandi að fara í samstarf við Ölfus og efla umgjörðina um þetta mót.
Það er sérstaklega jákvætt að finna áhuga og jákvæðni bæjarstjórnar í Ölfusi þegar kemur að bridge. Það er ljóst að úrslitin verða mjög spennandi og er það mikið tilhlökkunarefni að spila á stað hamingjunnar.