Ársþing 9.maí 2021 - dagskrá
miðvikudagur, 5. maí 2021
Ársþing BSÍ verður haldið í húsnæði Bridgesambands Íslands sunnudaginn 9.maí og hefst klukkan 15:00.
Félög innan hreyfingarinnar hafa setu- og atkvæðarétt á þinginu samkvæmt kvótaútreikningi skilagreina en áheyrnarfulltrúar eru velkomnir að sitja þingið.
Formenn eru beðnir um að senda útfyllt kjörbréf eða tölvupóst nöfn á þeim fulltrúum sem sitja eiga þingið á bridge@bridge.is
Ef einhver hefur hug á að sitja þingið án þess að vera fulltrúi félags, sendi viðkomandi inn umsókn með tölvupósti á póstfangið bridge@bridge.is