María og Stefanía Íslandsmeistarar kvenna í tvímenning 2017
laugardagur, 30. september 2017
María Haraldsdóttir Bender og Stefanía Sigurbjörnsdóttir unnu
Íslandsmót kvenna í tvímenning 2017. Þær fengu
61% skor og voru rétt rúmum 5 spilum (toppum) á undan 2.
sætinu.
Soffía Daníelsdóttir og Þóranna Pálsdóttir skutust upp í 2. sætið í
síðustu umferð og einu stigi frá þeim í 3. sæti voru þær Ingibjörg
Guðmundsdóttir og Sólveig Jakobsdóttir.