Ókeypis Bridgenámskeið fyrir 25 ára og yngri
mánudagur, 20. mars 2017
Bridgeskólinn býður öllum 25 ára og yngri að koma á ókeypis
námskeið og læra að spila bridge.
Byrjað er frá grunni, ekki þarf að vera með neina þekkingu á
spilinu áður en mætt er á námskeiðið.
Námskeiðið hefst mánudaginn 27.mars og er Þrjú mánudagskvöld
milli kl 19 og 22.
Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að spila bridge að koma á þetta
námskeið.
Ekkert mál að mæta einn/ein (ekki þarf að hafa
makker).
Námskeiðin eru haldin í húsnæði Bridgesambands Íslands, Síðumúla
37.
Innritun er í síma 8985427 eða
í tölvupósti bridge@bridge.is