Frakkar Evrópumeistarar 2016 + lokapistill

föstudagur, 24. júní 2016

EM-pisill LOKADAGUR

Á tíunda og seinasta degi þessa erfiða Evrópumeistarmóts þar sem allir spiluðu við alla ( ekki Alla) voru þrír krefjandi leikir á dagskrá. Ísland var í bullandi baráttu við Finna um hvor þjóðin yrði ofar, að vísu vissu Finnar ekkert um þessa keppni svo þetta var lítil pressa á þeim.

Ísland - Ítalía...
Fyrsti leikurinn var gegn Ítalíu. Þrösturog Svenni hvíldu og var leikurnn að mestu leyti ágætlega spilaður. Ítalirnir voru þéttir og gáfu lítil færi á sér. Ítalarnirkeyrðu í slemmu sem stóð á meðan okkar menn létu sér nægja geim. Þetta þýddi sjöunda tap liðsins í röð og einungis rúmlega 6 stig í hús.

Ísland- Tyrkland
Í þessu leik hvíldu Maggi og Láki og Íslad byrjaði mjög vel og var fljjótlega komið í 37-0 og stefnid í Ippon hjá okkar mönnum en næstu spil voru ýmist stórt inn eða stórt út og .ví bættist ekki meira við forskotið. Góður og stór sigur engu að síður og Finnar í sjónmáli. Lokatölur 78 impar gegn 43sem þýddi 17.45 í sarpinn og 14. sætið.

Ísland - Þýskaland
Þýskaland hafði vreið í toppbaráttu nánast allt mótið og tryggt sig inn á Bermúda bowl. Svenni og Þröstur ásamt Magga og Láka spiluðu og áttu prýðilegan leik og sigldu heim góðum sigri í lokaumferðinni. Ísland skoraði 38 impa geg 22 oghlaut fyrir það 14.18 stig. Þetta þýddi að liðið endaði í 14. Sæti og varð fyrir ofan Finna og Færeyinga en á eftir Norðmönnum og Svíum.

Ágætis endir á brokkgengu móti þar sem mörg tækifæri fóru forgörðum en mótið var skemmtilegt og spennandi góð umgjörð á spilastað og vel að öllu staðið.

Þetta er því síðasti pistillinn minn og ég vona að þeir sem lásu pistlana hafi haft af þeim eitthvert gagn og / eða gaman.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar