Föstudagurinn 24.júní á EM og pistill frá EM

fimmtudagur, 23. júní 2016

EM pistill Dagur 9
Þetta er næst síðasti pistillinn og mikið hefði ég nú viljað að hann hefði verið sigurslegnari. En maður getur víst ekki ráðið því Nýr dagur og Bretarnir búnir að kjósa sig út úr Evrópusambandinu. Alli og Birkir fengu að kúra aðeins lengur og átta að mæta ferskir í leik 2. Nokkrar umræður voru um þetta við morgunverðarborðið og sýndist sitt hverjum.
Ísland Portúgal
Eftir tvo tapleiki í röð var kominn tími á viðsnúning en kannski voru menn með hugann við ...eitthvað annað en brids svona í morgunsárið því staðreyndin var sú að leikurinn gegn Portúgal byrjaði illa og endaði illa. Lokatölur urðu 3.58 stig gegn 16.42 og liðið í 15. Sæti einu sæti fyrir ofan Finna.

Ísland- Úkraína
Láki og Maggi settust á varamannabekkinn á meðan félagar þeirra reyndu að stýra liðinu aftur inn á sigurbraut. Ísland leiddi til að byrja með en þegar líða tók á leikinn sigu Úkraínumenn fram úr þratt fyrir að íslendingarnir væruekki að gera sig seka um stóra feila. Lokatölur urðu 8.52 stig gegn 11.48 og fimmtánda sætið vermt um sinn en nú hafði Finnland skotist fram úr.

Ísland - Írland
Þröstur og Svenni hvíldu og Íland byrjaði illa eins og svo oft áður í þessu móti með svingi í fyrsta spili. Öðrum megin voru Írarnir doblaðir í 5 laufum sem stóðu slétt á meðna Írarnir á hinu borðinu fengu að spila 4 spaða ódoblaða þrjá dán. Stuttu síðar fóru Íslendingar í frekar bjartsýna slemmu og liðið langt undir til að byrja með. Þeir náðu þó að klóra aðeins í bakkan og lokatölur urðu 6.03 gegn 13.97og enn sat liðið sem fastast í fimmtánda sætið.

Ísland - Danmörk
Alliog Birkir hvíldu og hinir voru staðráðnir í að tapa ekki 6. leiknum í röð ( því miður tókst það ekki).Sanir voru einkar farsælir og okkar menn náðu aldrei neinu taki á leiknum en náu í lokin að minnka muninn í tíu stig og halda tapinu í 7.20 gegn 12.80. Þessi úrslit þýða að liðið er enn í fimmtánda sæti og skuldar nú því finnska sem er næsta sæti 7 stig.

Á morgun byrjar spilamennska hálftíma fyrr ( 7:30 á íslenskum tíma) og það er mín einlæga von að strákarnir endi þetta mót með þremur góðum leikjum. Eftir óstuðið í dag eiga þeir inni svolítið stuð á morgun.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar