Bridge bætir heilsuna
fimmtudagur, 5. mars 2015
Bridge hefur oft verið nefnd erfiðasta hugaríþrótt í heimi. Það
þarf mikla elju og æfingu til að verða góður í bridge. Nú hafa
Danir fundið það út með rannsókn að bridge stuðlar að betri heilsu.
Rökstuðningur er einkum þessi: "Bridge er byggt upp í kringum
félagsskap annarra spilara og það er þessi félagslegi þáttur sem
spilar svo þýðingarmikla rullu í sambandi við tenginguna að bridge
skapar betri heilsu." Danir eru nú að hefja mikla rannsókn á þessu
sem Anette Schulz stýrir, nánar má lesa um rannsóknina á slóð
Danska Bridgesambandsins, sjá www.bridge.dk.
Það verður spennandi að fylgjast með þessu...