Icelandair - Reykjavík Bridge Festival
Menntamálaráðherra, Illugi Gunnarsson mun setja
Bridgehátiðina "Icelandair Reykjavík Bridge Festival
2015" - sem hefst þann 29. janúar kl.
19:00.
Keppt er á Hótel Natura (Loftleiða hótelið) Þetta er stærsta
bridgemót sem haldið hefur verið hér á landi, en keppendur verða um
420, þar af er um helmingur erlendir keppendur. Nokkrir af bestu
bridgespilurum heims taka þátt í mótinu. Þar má sennilega fremstan
telja Zia Mahmood sem kemur með sterka sveit. Þýska landsliðið
mætir, Danir og Svíar eru með sterkar sveitir. Hjördís
Eyþórsdóttir, Heimsmeistari kvenna í sveitakeppni með liði sínu
Bandaríkjunum Norðmenn fjölmenna eins og svo oft áður. Rune
Hauge einn þekktasti umboðsmaður knattspyrnumanna í Evrópu kemur
með sterka
sveit.
Frá Danmörku kemur Gustav "Gus" Hansen einn frægast pókerspilari
heimsinins. Hann hefur tekið ástfóstri við bridge til að styrkja
sig í átökunum við póker spilaborðið. Allir bestu bridgespilara
Íslands taka þátt í þessu móti.Mótið hefst þann 29. janúar kl.
19.00 og stendur til sunnudags kl. 18.00, en þá fer
verðlaunaafhending fram. Áhorfendur eru velkomnir á staðinn
til að fylgjast með. Aðgangur er ókeypis.
"Bridge gerir lífið skemmtilegra".
Hér er hægt að fylgjst með mótinu
http://reykjavikbridgefestival.com/