Bridgelandsliðið valið
föstudagur, 7. febrúar 2014
Landsliðsnefnd hefur ákveðið hverjir skipi landslið
Íslands á Evrópumótinu í Opnum flokki sem verður haldið í Króatíu í lok
júní 2014. Þessi pör munu skipa landsliðið:
Aðalsteinn Jörgensen og Bjarni Einarsson; Jón Baldursson og
Sigurbjörn Haraldsson; Magnús Magnússon og Þröstur
Ingimarsson.
Ekki hefur verið ákveðið hver verður fyrirliði landsliðsins. Um
þjálfun liðsins sjá Guðmundur Páll og Sveinn Eiríksson um, einnig
mun Magnús Magnússon sjá um sagnæfingar. Landsliðið mun taka þátt í
tveimur erlendum mótum í vor og einnig verður haldið sérstakt
boðsmót um miðjan júní.