Landsliðsmál - undirbúningur í opna flokknum
miðvikudagur, 30. október 2013
Í júní 2014 fer fram Evrópumótið í Bridge i Króatíu. Til undirbúnings Evrópumótinu verða haldnar landsliðsæfingar fyrir opna flokkinn og hefjast þær föstudaginn 8. nóvember kl. 18.00 í húsnæði sambandsins. Áformað er að vera með allt að átta pör á landsliðsæfingum og er hér með auglýst eftir pörum til þátttöku. Verði þátttaka meiri en átta pör mun landsliðsnefnd velja pör til æfinga. Á fyrsta fundi verður gerð nánari grein fyrir undirbúningi. Guðmundur Páll mun stýra landsliðsæfingum og munu fleiri koma að þjálfun liðsins. Áhugasöm bridgpör endilega hafið samband við skrifstofu sambandsins.