Landsliðskeppnin verður 15.-17. mars
sunnudagur, 24. febrúar 2013
Landsliðskeppni fyrir komandi Norðurlandamót verður spiluð í Síðumúlanum helgina 15.-17. mars. Þátttaka er miðuð við 8 pör í hvorum flokki (opnum flokki og kvennaflokki), en tilkynnt verður um nánari tilhögun og tímasetningu síðar.
Norðurlandamótið fer fram í Keflavík dagana 24.-26. maí.