Búið að draga í 2.umferð í bikarnum
Dregið var í gær í 2.umferð í bikarnum
Hver verður heppna tapsveitin sem kemst áfram í aðra umferð
bikarsins? Nú eru þrjár sveitir sem hafa tapað með eins stigs mun.
Það eru eftirfarandi sveitir: Fríman Stefánsson, Wednesday Club og
Hákon V. Sigmundsson
Þar sem enn er tveimur leikjum ólokið úr fyrstu umferð þá verður
því frestað til 9.júlí að draga um hvaða tapsveit kemst áfram.
Sveitin Sproti lendir á móti heppnu tapsveitinni. Ef svo fer að
sveit Hákonar kemst áfram þá lendir hún á móti Karli
Sigurhjartarsyni og félögum en sveit Ingimundar myndi þá spila við
Sprota. Svona er þessu háttað til að Sproti og Hákon lendi ekki
strax aftur saman.
Hér
má sjá 2.umferð eins og hún lítur út núna
Heimasíða mótsins