Pistill frá Dublin
Eftir góða spilamennsku í upphafi móts gekk allt á
afturfótunum á laugardag og sunnudag,þá vorum við komnir í 11-13
sæti.
Mánudagurinn var góður þá unnust tveir mjög góðir sigrar og í
morgun (þriðjudag) gerðum við jafntefli við feiknasterkt lið Rússa
sem voru í þriðja sæti. Eina þjóðin sem gat náð okkur að stigum í
síðustu umferðinni var Wales en þeir töpuðu fyrir Sviss 18-12,
Svissnesku vinir okkur gerðu það sem þurfti þannig að Ísland kæmist
í úrslit. Eistland burstaði Finnland 21-9 og komu næstir á eftir
okkur með 249 stig en Ísland hlaut 255 stig. Það eru síðan 18
þjóðir sem etja kappi í úrslitunum og allt getur gerst. Athygli
vekur gott gengi aðkeypt stjörnulið Monaco. Ég kom með hákarlalýsi
frá Íslandi í gær og það urðu allir að taka það inn og svo verður
út mótið, vonandi gefur það aukinn styrk.
með kveðju frá Dublin Jafet Ólafsson, forseti Bridgesambandsins