Úrslit Íslandsmótsins - keppnisstaður
Töluverð umræða hefur verið meðal bridgespilara um þá ákvörðun
að úrslitamótið í sveitakeppni skuli fara fram í húsnæði
Bridgesambandsins í Síðumúla. Finnst mörgum að húsnæðið hæfi ekki
úrslitakeppninni og lítil aðstaða sé fyrir áhorfendur. Þetta er
ekki ný umræða og kom m.a. upp í fyrra. Því var þá heitið að betri
keppnisstaður yrði fundinn á næsta ári, sem nú er runnið upp.
Forseti og framkvæmdastjóri Bridgesambandsins hafa leitað ýmissa
leiða til að finna góðan stað fyrir mótið en allar líkur eru á því
að við verðum að halda það í Síðmúlanum. Meginástæða er sú háa
húsaleiga sem farið er fram á fyrir þessa fjóra daga sem
úrslitakeppnin stendur yfir. Hótel Natura (Loftleiðir) fara fram á
551.000 króna leigu. Reykjavík Bridge Festival var haldið þar í
janúar og undankeppnin fór þar einnig fram, var
þá svipuð leiga greidd í hvort sinn. Í úrslitunum er
spilað samtals á 12 borðum, þannig að þetta rúmast vel í
Síðumúlanum. Húsnæðið verður lagfært, m.a. með tilliti til hljóðs,
samtals er sá kostnaður um 700.000 kr og viljum við einfaldlega
frekar verja þeim peningum í nauðsynlegar breytingar, heldur en
í háa húsaleigu annars staðar.
Enn er verið að leita að öðru húsnæði og er þeim möguleika haldið
opnum að færa mótið, kannað hefur verið húsnæði í skólum, hjá
íþróttafélögum, húsnæði Sautján á Laugaveginum og víðar. Við
treystum okkur ekki til að hækka keppnisgjöld frekar, framlög hins
opinbera hafa dregist verulega saman, framundan eru dýrar keppnir í
Evrópumótinu og Ólympíumótinu. Við þurfum að sníða okkur stakk
eftir vexti, því er þetta niðurstaðan nema aðrir möguleikar
opnist.
Jafet S. Ólafsson, forseti