Fréttir af landsliðsmálum
Af landsliðsmálum er það helst að segja að dagskrá
lokaundirbúnings er hafin og er hún mjög þétt. Liðsmenn
eru í úthalds- og þrekæfingum 3 daga í viku og á
bridgeæfingum tvisvar sinnum í viku. Þá er búið að setja upp
æfingaspiladagskrá á þrjár langar helgar fram í október, fyrir utan
þá spilamennsku, sem sumir af liðsmönnum fremja í bikarkeppni
Bridgesambandsins. Fyrsta spilahelgin, sem
er kostuð af Iceland Express, fer fram dagana 26-28.ágúst
að Grand Hotel og koma 3 norks pör og 2 dönsk pör til leiks og
verða spilaðir 9 x 16 spila leikir þá helgina. Samskonar
helgarmót, líka kostuð af Iceland Express, fer fram
16-18.sept á Center Plaza, með þátttöku erlendra para.
Síðustu helgina áður en farið verður til Hollands, þá verður sett
up 16 spila æfingamót með sterkum íslenskum
pörum. Ákveðið hefur verið að ekki
verður sýnt frá æfingamótunum á BBO, svo andstæðingar okkar fái
ekki tækifæri til þess að stúdera okkar menn, á hinn bóginn er hinn
almenni íslenski bridgespilari hvattur til þess að mæta og fylgjast
með. Ýmislegt fleiri er á dagskránni, sem óþarfi er að
nefna hér á spjallinu.
Góður hugur er í okkar liðsmönnum og gaman að vinna með þeim og
finna ákafan og ástríðuna, sem þátttaka í Heimsmeistaramótinu hefur
augljóslega gefið mönnum.
Ég þakka Ragga Herm fyrir að hvetja til upplýsingagjafar um málefni
landsliðsins og annarra góðra bridgemála innan okkar
hreyfingar. Vonandi hefur mér tekist að koma því helsta á
framfæri, sem er í gangi hjá okkur í landsliðinu.
Með bridgekveðju,
Björn