Heimsmeistarmótið– Val á landsliðshópi og landsliðs fyrirliða
Landsliðsnefnd Bridgesambands Íslands hefur valið landslið og
landsliðsfyrirliða
sem keppa munu fyrir Íslands hönd í úrslitum
Heimsmeistaramóts í sveitakeppni,
Bermuda Bowl, (Bermuda skálin), í október 2011 sem haldið er í
Hollandi.
Þau pör sem orðið hafa fyrir valinu eru:
Aðalsteinn Jörgensen - Bjarni H. Einarsson
Jón Baldursson - Þorlákur Jónsson
Magnús E. Magnússon - Sigurbjörn Haraldsson
Landsliðsfyrirliði verður Björn Eysteinsson
Framundan er mikill undirbúningur fyrir heimsmeistarmótið,
þátttaka í sterku æfingamóti í Hollandi í maí,
en hollenska
landsliðið sem eru gestgjafar og þátttakendur á Heimmeistaramótinu,
eru líka byrjaðir að undbúa sitt lið.
Þá er Norðulandamót um mánaðarmótin maí/júní, mót í Þýskalandi í
ágúst. Í september verður haldið í Reykjavík sérstakt boðsmót og
einning æfingamót með þátttöku þekktra spilara frá Danmörku, Noregi
og Svíþjóð.
Þeir sem fara fyrir Íslands hönd á NM eru:
Páll Valdimarsson - Ragnar Magnússon
Aðalsteinn Jörgensen - Bjarni H. Einarsson
Í kvennaflokki fara þær:
Anna Ívarsdóttir - Guðrún Óskarsdóttir
Alda Guðnadóttir - Stefanía Sigurbjörnsdóttir