Norðurlandamótið 2025 á Íslandi
Norðurlandamótið 2025 verður haldið á Laugarvatni 5. - 8. júní 2025.
Nýskipuð Landsliðsnefnd BSÍ 2009-2010 hefur ákveðið að óska eftir umsóknum frá pörum til að mynda 6-8 para Landsliðshóp í Opnum flokki og Kvennaflokki. Þetta er ekki hópur sem er myndaður til skamms tíma heldur er framtíðarsýn Landsliðsnefndar að vera ávallt með 6-8 pör í Landsliðshóp hverju sinni. Óskar er eftir pörum sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
Hafa áhuga og metnað til að spila fyrir Íslands hönd á bridgemótum.
Geti æft/unnið/spilað reglulega sem par. Innifalið í því getur verið:
Fyrirlestur/úrlausn verkefna
Æfingar í húsnæði BSÍ eða á öðrum fyrirfram ákveðnum stað.
Spilamennska í húsnæði BSÍ eða á öðrum fyrirfram ákveðnum stað.
Æfingar á netinu
Spilamennska á netinu
Krafist er 100% mætingar og 100% skil á verkefnum, stór hluti af verkefnunum geta spilara leyst á tíma sem þeir ákveða sjálfir.
Spilarar þurfa að vera tilbúnir að aðrir fari yfir spilin þeirra, hvort sem er meldingar eða spilamennska.
Landsliðsnefnd ætlar að bjóða upp á metnaðarfullt og árangursíkt æfingaplan og stefnt er að búa til verkefni fyrir 6-8 pör á hverju spilaári.Næstu verkefni landsliða Íslands fara fram sumarið 2010. Þau pör sem koma til með að skipa landsliðshópinn þurfa að vera tilbúinn í verkefni fram að 1. september 2010 eða mögulega síðar eftir verkefnum hverju sinni.
Með hverri umsókn skal fylgja ástæða fyrir því að sótt er um. Tekið er við umsóknum í tölvupósti til bridge@bridge.is eða í lokuðu umslagi sem skilast til skrifstofu BSÍ á opnunartíma skrifstofu. Umsóknarfrestur rennur út 12. desember kl. 17:00
Landsliðsnefnd BSÍ:
Kristinn Kristinsson
Ragnar Hermannsson
Gunnlaugur Karlsson
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar