Kjördæmamót 2009
þriðjudagur, 17. mars 2009
Kjördæmamótið í bridge verður að þessu sinni á Austurlandi - innan um hin fögru fjöll Austfjarða
Spilað er helgina 23-24 maí á Eskifirði.
Upplýsingar um gistingu er hægt að fá hjá Einari í s. 892-1208
Kjördæmin eru beðin um að senda skráningarlista til BSÍ fyrir fimmtudaginn 15.maí n.k.
Nánari upplýsingar verða settar á netið þegar nær dregur.
Má til með að láta þessa skemmtilegu vísu fylgja hér með sem ort var í snatri í tilefni Kjördæmamótsins
Höfundurinn býr á Akureyri
Mörg þar sögnin sögð mun snjöll
og sjálfstraust aldrei bila,
ef "innan um hin fögru fjöll"
fæ ég bridge að spila.