Íslandsmót yngri spilara - Norðurlandamót yngri spilara
Íslandsmót yngri spilara í sveitakeppni fór fram síðasta
laugardag með þátttöku tveggja sveita, landsliðs Íslands í yngri en
25 ára flokki og 20 ára flokki. Eldra liðið vann en í því spiluðu
Grímur Kristinsson, Guðjón Hauksson, Gabríel Gíslason og Jóhann
Sigurðarson.
Í öðru sæti urðu Davíð Örn Símonarson, Ólafur Hrafn Steinarsson,
Fjölnir Jónsson og Ingólfur P. Matthíasson. Til hamingju!
Minnt er á Norðurlandamót yngri spilara sem verður haldið hér á
Íslandi um páskana,
sjá
heimasíðu mótsins hér
Íslandsmót yngri spilara í sveitakeppni og tvímenning verður
haldið 4 og 5 apríl n.k.
Fyrri daginn verður sveitakeppnin og þann síðari
tvímenningur.
Þeir spilarar sem þurfa að fara um langan veg eða meira en 100
km verða styrktir af BSÍ.´
Engin keppnisgjöld eru innheimt, við hvetjum því alla yngri spilara
til að koma og vera með.
Skráning er hafin og hægt er að skrá sig í síma 587-9360 og á
bridge@bridge.is