SIGUR ÍSLENSKRAR SVEITAR Í SVÍÞJÓÐ
Sveit skipuð íslenskum spilurum vann öruggan sigur á árlegu
alþjóðlegu móti í Uppsala í Svíþjóð sem spilað var helgina 9.-10.
desember. Spilarar í sveitinni voru Ísak Örn Sigurðsson, Ómar
Olgeirsson, Stefán Jónsson og Steinar Jónsson. Þátt tóku 18 sveitir
og voru spilaðar 17 umferðir, allir við alla, 6 spila leikir. Sveit
Íslendinganna, Þrír frakkar, endaði með 313 stig sem gera rúmlega
18,4 stig í leik að meðaltali.
Næstu sveitir voru með 288, 276 og 274 stig. Þetta er í annað sinn
sem íslensk sveit tekur þátt í þessu móti, í fyrra hafnaði sveit
Garða og véla í þriðja sæti.
Sjá nánar hér (Resultat UBS-Lagguld og UBS-Lagguld IAF)
Sigurvegarar í Svíþjóð:
Ísak Örn Sigurðsson, Stefán Jónsson, Ómar Olgeirsson og Steinar
Jónsson