JÓLAMÓTIN MILLI JÓLA OG NÝÁRS - Síðasti séns að skrá sig í mótin 30.des!

mánudagur, 18. desember 2006

Fjögur bridgefélög á landinu halda jólamót á milli jóla og nýárs sem jafnan hafa verið vel sótt.

Þrjú þeirra verða með mótið laugardaginn 30. desember.

B.Akureyrar - Glitnismótið í tvímenningi en það hefst kl 10:00 og verður 50-60 spil. Keppnisgjald er 2000kr. á manninn og eru glæsileg flugeldaverðlaun í boði. Stefán Vilhjálmsson gefur upplýsingar í síma 898 4475.

B.Blönduóss - Þorsteinsmótið Patton sveitakeppni þar sem Stefán Berndsen gefur upplýsingar í síma 452 4531.

B.Reykjavíkur -  Minningarmót Harðar Þórðarsonar að Síðumúla 37, upplýsingar um mótið á skrifstofu BSÍ 587 9360. Ath, hefst kl. 11:00

Fimmtudaginn 28. desember ætlar B.Hafnarfjarðar að vera með jólamót Sparisjóðs Hafnarfjarðar og B.Hafnarfjarðar að Flatahrauni 3 í Hafnarfirði. Hefst kl. 17:00.Upplýsingar og skráning í símum 899-7590 (Hafþór), 565-3050 (Erla) og 555-1921 (Atli)

Einnig er minnt á hina árlegu Bridgehátíð í Borgarnesi helgina fyrstu helgi eftir áramót, 6.-7. janúar!

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar