Söfnun fyrir Arnar Geir Hinriksson
Stofnaður hefur verið reikningur til söfnunar fyrir Arnar Geir
Hinriksson, bridgespilara frá Ísafirði, sem varð fyrir því óláni að
hryggbrotna á skíðum um páskahelgina og lamast af þeim sökum.
Arnar Geir
Hinriksson lenti í hræðilegu slysi á skíðasvæðinu í Tungudal þann
13. apríl s.l, og er fyrirséð að hann mun hljóta varanlega örorku
vegna þess.
Hryggjarliðir brotnuðu með þeim afleiðingum að Arnar er lamaður frá
brjósti og niður í tær, en hefur mátt í handleggjum. Löng og erfið endurhæfing
er fyrirséð og þegar hafin hjá honum.
Af þessum sökum
er ljóst að öll framtíð Arnars Geirs er í uppnámi og verður mjög
breytt og erfiðari fyrir hann en áður var. Ljóst er t.d. að hann
mun þarfnast fullrar umönnunar og núverandi húsnæði hans (íbúð á 2.
hæð án lyftuhúss), mun á engan hátt henta honum.
Nokkrir félagar
hans hafa af þessum
sökum tekið saman höndum og ætl að reyna að koma málum hans
í það horf að hann eigi þess kost að geta snúið aftur út í
lífsbaráttuna og tekið þátt í samfélaginu á breyttum forsendum. En
til þess þarf m.a. að útvega honum rétt hjálpartæki, þjónustu og
húsnæði. Er ljóst að við munum njóta hjálpar margra annarra aðila
við þá vinnu.
Til þessa málefnis hefur verið stofanaður bankareikingur 1128 05 401041
kt. 610269-2499