Íslandsmót í paratvímenningi
Hið vinsæla Íslandsmót í paratvímenningi verður haldið helgina
13.-14. maí í húsnæði Bridgesambands Íslands að Síðumúla 37.
Keppnisstjóri verður Sigurbjörn Haraldsson. Spilaður verður
tvímenningur með barómeterformi, þrjú spil á milli para.
Keppnisgjald er 7.000 krónur á parið. Skráning í keppnina er hafin
og hægt að skrá sig á vefsíðu BSÍ, bridge.is eða með því að hringja
í 587 9360 eða GSM 898 7162.
Spilamennska hefst klukkan 11:00 á laugardag, gert verður matarhlé
um 13:45-14:30 og spilamennsku lýkur um klukkan 18:44 þann dag.
Spilamennska hefst aftur klukkan 11:00 sunnudaginn 14. maí, gert
verður matarhlé um klukkan 13:20-14:10 og mótinu lýkur um klukkan
17:20. Nú þegar eru 30 pör búin að skrá sig og enn er hægt að bæta
við pörum, en þá gæti tímaáætlunin raskast.