Sveit Emblu Íslandsmeistari kvenna í sveitakeppni 2006
Sveit Emblu varð Íslandsmeistari kvenna 2006 í sveitakeppni með 121 Vinningsstig í 7 leikjum. Með Emblu spiluðu Bryndís Þorsteinsdóttir, María Haraldsdóttir, Hrafnhildur Skúladóttir og Soffía Daníelsdóttir. Jafnar í 2. sæti voru Esja kjötvinnsla og Smárinn. Esja endaði í 2. sæti með hagstæðari skor í innbyrðisviðureign. Allar nánari upplýsingar er að finna á hlekknum hérna að neðan:
Íslandsmeistarar kvenna í sveitakeppni 2005, Embla
Bryndís Þorsteinsdóttir, María Haraldsdóttir, Soffía Daníelsdóttir og Hrafnhildur Skúladóttir
Íslandsmót kvenna í sveitakeppni verður spilað helgina 4.-5. mars í Húsnæði BSÍ, Síðumúla 37. Fyrirkomulag fer eftir þátttökufjölda. Spilað er um gullstig í hverjum leik auk þess sem veitt eru uppbótarstig fyrir efstu sveitir. Keppnisgjald er 12000 kr. á sveit. Nánari upplýsingar veitir skrifstofa BSÍ, s: 587-9360. Keppnisstjóri er Sveinn Rúnar Eiríksson. Hægt að skrá sig á heimasíðu BSÍ, bridge.is . Spilað verður með skermum.