3 svæðamót í tvímenningi um næstu helgi
mánudagur, 13. mars 2006
Þrjú svæðamót í tvímenningi fara fram um næstu helgi, Reykjanes,
N-Vestra og Vesturland. Laugardaginn 18. mars fer fram svæðamót
Reykjaness í tvímenningi og spilastaður er Hamraborg 11 og
spilamennskan hefst klukkan 11:00.
Sunnudaginn 19. mars verða svæðamót N.Vestra og Vesturlands spiluð.
Spilastaður fyrir N-Vestra er Siglufjörður, bíósalurinn.
Spilastaður fyrir svæðasamband Vesturlands er að Kirkjubraut 40 á
Akranesi. Bæði þesi mót hefjast klukkan 10:00. Spilagjaldið er kr.
5.000 á parið í öllum svæðamótunum. Varðandi nánari upplýsingar,
vísast á viðburðadagatal en þar eru gefin upp símanúmer
tengiaðila.