Esther og Anna Þóra Íslandsmeistarar kvenna í tvímenningi
Sunnudagur 20. nóvember 2005
Íslandsmótið í tvímenningi kvenna var spilað um helgina, að
Síðumúla 37.
Í 3 efstu sætunum urðu:
1. Esther Jakobsdóttir - Anna Þóra Jónsdóttir 52
2. Erla Sigurjónsdóttir - Dóra Axelsdóttir 35
3. Ólöf Þorsteinsdóttir - Svala Pálsdóttir 27
Öll spil og lokastöðuna má finna undir síðunni Mót, eða með því að
smella á Íslandsmót kvenna í
tvímennin 2005
Íslandsmót kvenna í tvímenningi 2005 fer fram helgina 19.-20. nóvember. Spilaður er barómeter, allir við alla. Spilamennska hefst klukkan 11:00 stundvíslega báða dagana, lýkur um kvöldmatarleytið á laugardaginn og vel fyrir kvöldmat á sunnudag, en tímasetningar eru þó háðar þátttöku. Nákvæm dagskrá mótsins liggur fyrir þegar skráningu lýkur. Skráningarfrestur er til klukkan 17:00 föstudaginn 18. nóvember. Keppnisgjald er 6.000 krónur á parið. Hinn vinsæli keppnisstjóri, Björgvin Már Kristinsson er keppnisstjóri á mótinu. Spilað er með skermum og spilað um gullstig í verðlaun fyrir fjögur efstu sætin. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu BSÍ, síma 587 9360.