Nýr framkvæmdastjóri tekinn til starfa
fimmtudagur, 6. október 2005
Ísak Örn Sigurðsson er bridgefélögum að
góðu kunnur og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
Bridgesambandið í gegnum tíðina. Hann gegndi á sínum tíma stöðu
framkvæmdastjóra BSÍ árin 1988-90. Síðan hefur hann fengist við
ýmis störf við blaðamennsku og almannatengsl. Bridgesamband Íslands
býður Ísak velkominn til starfa og væntir góðs af
samstarfinu.