Deildakeppnin hefst um helgina
Deildakeppnin í bridge fer fram á tveimur
helgum, 22.-23. október og 5.-6. nóvember í húsnæði Bridgesambands
Íslands að Síðumúla 37.
Spilað er í þremur
deildum, 8 sveitir í fyrstu og annarri deild en ótakmarkaður fjöldi
í þriðju deild. Öllum sveitum er frjálst að skrá sig til leiks í
þriðju deild. Keppnisgjald er 24.000 krónur á sveit. Mikilvægt er
að allar sveitir skrái sig til leiks í ár, án tillits til þess
hvort breytingar hafi orðið á sveitinni frá síðasta ári. Skulu þá
skráð nöfn 4 spilara hið minnsta. Skrá skal 4-6 spilara í hverja
sveit, 2 aukavaramenn mega líka spila (en þeir mega þá ekki spila
með annarri sveit í deildakeppninni það árið). Sigursveit efstu
deildar mun gefast kostur á 400. þúsund kr. ferðastyrk á mót
erlendis og skal hún nýta það fyrir 31. desember 2006.
Verðlaunagripir fyrir 3 efstu sveitir í hverri deild (6 stk á
sveit).
Um nánari útlistanir á reglum verðandi deildakeppnina, vísast til
vefs bridgesambandsins bridge.is .