Fréttir
11.desember
Ómar Freyr Ómarsson og Örlygur Már Örlygsson unnu Cavendish
tvímenning BR sem lauk þriðjudaginn 11.desember. Gunnlaugur
Sævarsson og Runólfur Jónsson skoruðu grimmt síðasta kvöldið og
voru nálægt því að skjótast á toppinn
1. Ómar Freyr Ómarsson - Örlygur Már Örlygsson 1452
2. Gunnlaugur Sævarsson - Runólfur
Jónsson 1302
3. Gísli Steingrímsson - Sveinn
Þorvaldsson 1080
4. Jónas P. Erlingsson - Guðmundur
Pétursson 1040
5. Alda Guðnadóttir - Esther
Jakobsdóttir
1033
6. Halldór Svanbergsson - Kristinn
Kristinsson
847
Næsta þriðjudag, 18. desember verður
jólasveinatvímenningur
2.sæti:Gunnlaugur Sævarsson-Runólfur Jónsson, 1. Örlygur Már
Örlygsson-Ómar Freyr Ómarsson,
3. Sveinn R. Þorvaldsson-Gísli Steingrímsson
20.nóvember
Sveit kennd við Pál Þórsson kennara vann hraðsveitakeppni BR. Í öðru sæti kom sveit kennd við Pál Valdimarsson línumann. Í þriðja sæti sveit Grant Thornton Bókara.
Sigurvegarar í hraðsveitakeppni:
Hermann Friðriksson, Páll Þórsson, Jón Ingþórsson og Sverrir
Þórisson
Sveit Eyktar vann öruggan sigur í swiss - sveitakeppni BR þrátt fyrir að hafa fengið skell í næstsíðustu umferð. Í raun máttu þeir einnig fá 0 stig í síðustu umferðinni og samt unnið, þvílíkir voru yfirburðirnir.
Sjá
stöðu.
1.sæti - Eykt. Því miður náðust Eyktarmenn ekki á mynd, þeir þóttu
ekki nógu myndarlegir :-)
2.sæti - Norge. Eru þetta heimsmeistararnir?
3.sæti - Vinir úr Kópavogi. Já, það er gott að búa í
Kópavogi...
Næsta mót félagsins er þriggja kvölda hraðsveitakeppni
sem hefst þriðjudaginn 6. nóvember. Að vanda er spilað í
Síðumúla 37 kl. 19. Aðstoðað verður við myndun sveita og
er vissara að mæta tímanlega að skrá sig til að
auðvelda skipulagningu.
10.október
Stefán Stefánsson og Vignir Hauksson/Skúli Skúlason unnu glæsilegan sigur í GRAND HÓTEL bötler BR og fengu að launum glæsilegt jólahlaðborð og gistingu á GRAND HÓTEL.
Grand á því! 3.sæti: Sveinn Rúnar Eiríksson-Hrannar
Erlingsson
1.sæti: Stefán Stefánsson-Skúli Skúlason(einnig spilaði Vignir
Hauksson)
2.sæti: Sigurbjörn Haraldsson-Bjarni Einarsson
Næsta mót félagsins er þriggja kvölda Swiss monrad sveitakeppni.
Skráning hafin! Aðstoðað verður við myndun sveita, vissara að
mæta tímanlega og þá eflaust hægt að mynda sveitir á staðnum.
GRAND HÓTEL BÖTLER
Guðrún Jóhannesdóttir og Haraldur Ingason héldu velli og sigruðu í haustvímenningi BR.
Lokastaðan
1. Guðrún Jóhannesdóttir.-Haraldur Ingason 55.10%
2. Gunnlaugur Karlsson-Kjartan Ingvarsson 54.65%
3. Hermann Friðriksson-Hlynur Angantýs/Jón Ingþórs 53,95%
4. Kjartan Ásmundsson-Hlynur Garðarsson/Stefán Jóhannsson
53,90%
5. Páll Valdimarsson-Sverrir Kristinsson 53,30%
6. Hjördís Sigurjónsdóttir-Ragnheiður Nielsen 52,95%
3.sæti: Hermann Friðriksson(Jón Ingþórs og Hlyn Antantýs vantar á
myndina)
1. sæti: Haraldur Ingason - Guðrún Jóhannesdóttir
2. sæti: Kjartan Ingvarsson - Gunnlaugur Karlsson
Guðrún Kristín Jóhannesdóttir og Haraldur Ingason unnu fyrsta spilakvöld BR með glæsilegum endaspretti. Í öðru sæti urðu Halldór Svanbergsson og Stefán Stefánsson.
Minnt á árskortin, 18.000 kr eða um 650 kr hvert skipti. Gott fyrir hörðustu spilarana, borgar sig ef spilað 23 skipti eða meira. Björgvin keppnisstjóri tekur við pöntunum. Mörg fyrirtæki og stéttarfélög veita íþróttastyrki, tilvalið að nota í bridge.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar