Stjórnarfundur 6.okt. 2020
Fundargerð stjórnarfundar Bridgesambands Íslands 6. Okt. 2020 kl. 18.00.
Mætt eru Jafet, Gunnar Björn, Denna og Sigurður Páll. Aðrir boðuðu forföll Denna, Pétur, Sunna og Ólöf.
-
1. Fundargerð síðasta fundar. Jafet setti fundinn. Fundargerð síðasta fundar var send út og er á vefnum.
-
2. Covid 19 og starfið framundan. Samþykkt að engin spilamennska færi fram í Bridgehimilinu að minnsta kosti til 19. Október, öllum mótum verður frestað eða þeim aflýst, nánar um það síðar.
-
3. Ársþing BSÍ 18. Okt..
Ákveðið að fresta ársþingi, verður sennileg um miðjan nóvember. Skýrsla forset og ársreikningar tilbúið, Jafet er búinn að fara yfir lögin og eru þau tilbúinn til framlagningar. Ákveðið að setja þessi gögn á netið í næstu viku. -
4. Svindmál. Jafet upplýsti um gang mála varðandi svindl á netinu. Bridgesambandið hefur ekki skýrar reglur eða lagafyrirmæli um að fjalla um slík mál, en hvetur alla Bridgespilara til að vera heiðarlegir í sinni spilamennsku.
-
5. Landsliðsmál. Ákveðið að fresta öllum landsliðsmálum fram í janúar, Jafet mun ræða við Anton varðandi opna flokkinn og hann mun sjá um landsliðið fram yfir Evrópumót í júní 2021.
-
6. Framkvæmdir í Síðumúlanum Minniháttar lagfæringar eru eftir á eldhúsi. Fljótlega á næsta ári þarf að kanna lagfræingar utan húss í samvinnu við aðra eigendur hússins.
-
7. Önnur mál. Denna mun standa fyrir því ásamt öðrum að eldri borgurum verði kennt að spila bridge á netinu, áformað að kenna 6 manns í einu.
Næsti fundur áætlaður í lok október
Fundi slitið um 18:45