Stjórnarfundur 10.sept.
þriðjudagur, 15. september 2020
Fundargerð stjórnarfundar Bridgesambands
Íslands
27.maí 2020 - kl. 17:30.
Mætt eru Jafet, Gunnar Björn, Sigurður Páll,
Denna, Sunna og Ólöf. Ingimundur og Pétur boðuðu
forföll
-
1. Fundargerð síðasta fundar. Jafet setti
fundinn. Fundargerð síðasta fundar var send út og er á vefnum.
-
2. Starfið í vetur. Sumarbridge verður til 23.
September, bridgeklúbbar eru að fara af stað vítt og breytt um
landið. Bridgeskólinn hjá Guðmundi Páli verður ekki starfræktur
fram að áramótum en námskeið hefjast um miðjan janúar 2021.
Bridgekennsla verður fyrir börn og unglinga næstu 3 laugardaga,
auglýst á facebook.
-
3. Íslandsmótið. Mótið fellur niður í ár. Jafet
hefur verið í sambandi við Hörpu og það verða ekki vandamál með
leigugreiðslur. Önnur mót með hefðbundnu sniði
-
4. Ársþing BSÍ, Ákveðið að ársþing
Bridgesambandsins verði haldið í húsakynnum sambandsins sunnudaginn
18. Október kl. 13.00. Jafet gefur kost kost á sér áfram sem
forseti sambandsins og hann mun ræða við aðra stjórnarmenn um
áframhaldandi stjórnarsetu. Ákveðið að leggja fyrir ársþingið
breytingu á lögum þannig að reikningsár Bridgesambandsins verði
almannaks árið en ekki til 1. Ágúst eins og nú er. Ársreikningur
liggur fyrir í drögum og er útlit fyrir smávegis hagnað af rekstri
sambandsins.
-
5. Svindmál. Komið hafa fram kvartanir að verið
sé að svindla á mótum sem fram fara á netinu, mót þessi voru ekki á
vegum BSÍ. Stjórnin sammála því að það settur dökkan blett á bridge
íþróttina ef verið sé að svindla við að spila bridge. Evrópska
Bridgesambandið hefur ályktað um þetta mál og eins hefur vefurinn
bridgebase.com ályktað um þetta mál. Jafet mun setja inn smá pistil
um þetta mál á heimasíðu Bridgesambandsins.
-
6. Reykjavík Bridgehátíð. Hátiðin verður á
sínum tíma í lok janúar 2021, reynt verður að fá einhver fræg nöfn
til að mæta á hátíðina hún verður auglýst í blöðunum fljótlega
ásamt bridgestarfinu.
-
7. Heimildarmynd um Bridge, Jón Óttar er að
taka myndina upp og stefnir á ð koma til Íslands í lok árs til að
taka upp.
-
8. Evrópusambandið í Bridge. Ársþing
Evrópusambandsins í Bridge átti að vera í júní á Madeira, það
verður núna á netinu með hjáp zoom, miðvikudaginn 4. Nóvember.
Samþykkt að Jafet og Ólöf fari með atkvæði Íslands, ekki verður
kosið í stjórn núna og mun Jafet sitja eitt ár til viðbótar í
stjórninni. Fjárhagur sambandsins góður, en griptið var til mikilla
sparnaðaraðgerða í fyrra.
-
9. Önnur mál. Jafet greindi frá bréfi til
stjórnar frá Friðjóni Þórhallssyni varðandi ákvörðun keppnisstjóra
í Bikarkeppninni þann 29. Ágúst, samþykkt að Sigurður Páll og Jafet
svari þessu bréfi. Sunna benti á að hjálstóla aðgengi væri ekki
nógu gott við útidyr, verið er að steypa í planið. Jafet greindi
frá Háskólakepnni á netinu.
Næsti fundur ákveðinn 6. Október kl. 18.00
Fundi slitið um 19.1