Stjórnarfundur 23.mars 2020
Fundargerð stjórnarfundar Bridgesambands Íslands
23. mars 2020 - kl. 17:30.
Mætt eru Jafet, Sunna, Gunnar Björn, Sigurður Páll, Pétur og Ólöf. Denna og Ingimundur boðuðu forföll
1. Fundargerð síðasta fundar. Jafet setti fundinn. Fundargerð
síðasta stjórnar
fundar var send út og er á vefnum.
2. Næstu mót. Farið yfir stöðuna varðndi Covid19 og áhrif þess á
spilamennsku og
mót framundan. Ákveðið er að fresta öllum mótum sem halda átti fram
að 10. maí.
Ákvörðun um hvort verður spilað eftir 10. maí svo og hvort
Kjördæmamótið fari
fram 15-16. maí verður tekin um mánaðarmótin apríl/maí.
3. Evrópumótið-val á landsliði Jafet sagði frá umræðum og skeyta
sendingum í
stjórn EBL varðandi Evrópumótið á Madeira um miðjan júní, ef mótinu
verður
frestað eru mestar líkur á að þá verði spilað um miðjan nóvember.
Anton hefur
ákveðið hverjir skipa landslið Íslands í Opnaflokknum og tilkynning
um það var sett
inn á vefinn, val á kvennalandsliðinu liggur fyrir fyrstu viku í
apríl.
4. Heimildarmynd um Bridge - Jón Óttar Ragnarsson fyrrverandi
sjónvarpsstjóri
vinnur nú að mikilli heimildarmynd um bridge og áhuga Íslendinga á
Bridge. Sjálfur
hefur hann spilað Bridge frá unga aldri. Fyrir liggur rammi að
myndinni og eru tökur
þegar hafnar, ræða á við nokkra heimsþekkta menn um áhuga þeirra á
Bridge m.a.
Warren Buffet, Bill Gates og Mick Jaegger, auk heimsþekktra
bridgespilara.
Jón Óttar leitar eftir stuðningi Bridgesambandsins við gerð
þessarar myndar.
Nokkur umræða varða um málið. Samþykkt var að Bridgesambandið myndi
veita
400.000 til verkefnis, það skilyrði yrði sett að Ísland fengi þarna
nokkuð rými og
rætt verði við einn úr Heimsmeistaraliðinu frá 1991.
5. Önur mál, fleira ekki gert fundi slitið 18.15.
Næsti stjórnarfundur verður sennilega 29. apríl kl. 17.45