Norðurlandamótið 2025 á Íslandi
Norðurlandamótið 2025 verður haldið á Laugarvatni 5. - 8. júní 2025.
Mætt eru Jafet, Gunnar Björn, Ingimundur, Sigurður Páll og Pétur
1. Fundargerð síðasta fundar. Jafet setti fundinn.Fundargerð síðasta fundar var send út og er á vefnum.
2. Corona. Farið yfir stöðuna, sprittið, handþvottinn og annað. Ákveðið að fresta mótum næstu 2 helgar. Ákvörðun um önnur mót í apríl og maí tekin í lok mars mánaðar. Húsnæði Bridgesambandsins lokað fyrir spilamennsku, en skrifstofan opin eftir þörfum
3. Evrópumótið. Mikil umræða hefur átt sér stað um Evrópumótið og þá hvort það verður haldið á réttum tíma eður ei. Búið að aflýsa stjórnarfundi í Evrópska Bridgesambandinu og verður SKYPE fundur í staðinn fyrstu vikuna í apríl. Ákvörðun um mótið verður tekin fyrir 15. Apríl. Áformað að tilkynna val á landliðinu í Opna flokknum 20. Mars og yrir kvennalandsliðið fyrir 10. Apríl.
4. Fundur 17.mars. Ákveðið að fresta honum ekki að svo komnu máli, staðan tekin þegar nær dregur.
5. Fundi slitið kl. 18.20
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar