Stjórnarfundur 8.janúar 2020
Fundargerð stjórnarfundar Bridgesambands Íslands 8. Janúar 2020 - kl. 17:30.
Mætt eru Jafet, Guðný, Gunnar Björn, Sigurður Páll, Sunna, Pétur og Ólöf. Ingimundur boðaði forföll
-
1. Fundargerð síðasta fundar. Jafet setti fundinn.Fundargerð síðasta fundar var send út og er á vefnum.
-
2. Reykjavík Bridgehátíð Jafet fór yfir fyrirkomulagið, menntamálaráðherra setur mótið, Jafet býður keppendur velkomna, Denna með Ólöf munu sjá um verðlaunaafhendingu. Jafet mun sjá um trompetliekara í verðlaunaafhendinguna Keppnistórar og starfslið klárt. Jafet og Ólöf munu eiga fund með starfsliði Hörpu og veitingastaðarins. Góð skráning er í mótið.
-
3. Nýr vefur. Sigurður sagði lítið vanta upp á að nýr vefur Bridgesambandsins færi í loftið, búið væri að prófa vefinn og eitt mót hefði verið sett inn á hann.
-
4. Nýliðun -Bridgeskólinn. Jafet greindi frá auglýsingum sem birtast munu á næstu dögum í dagblöðum, hálfsíða þar sem Bridgeskólinn er auglýstur sérstaklega, góð skráning er á byrjendanámskeið. Nýliðun krakkaspilamennska verður 25. Janúar og skipulögð dagskrá fram á vor. Ákveðið að hafa ókeypis á nýliða námskeið fram á vor. Athuga með auglýsingar hjá ÍTR fyrir sumar námskeið.
-
5. Landsliðsmál. Jafet fór yfir málin, Anton er með skipulagða þjálfun í Opna flokknum fram á vor. Fundur með eldri flokknum 9. Jan og þeim pörum sem hafa gefið kost á sér í kvennalandsliðið 21. Janúar. Tilkynna þarf nöfn í landsliðum fyrir 15. Apríl stefnt að því að val liggi fyrir 15. Mars n.k. á öllum landsliðum.
-
6. Framkvæmdir í Síðumúlanum. Jafet fór yfir að nauðsynlegt væri að ráðast í endurbætur á húsnæðinu að utan og stigagangi. Einnig þarf að klára minniháttar framkvæmdir innan húss. Jafet og Ólöf munu eiga fund með öðrum eigendum hússins.
-
7. Innri mál Bridgesambandsins. Ákveðið að hafa fund með formönnum Bridgefélaga og svæðasambanda 20. Febrúar. BS'I myndi sjá um ferðakostnað, Ólöf sér um að boða aðila, Jafet og Pétur munu undirbúa málefnilega umræðu á fundinum. Öll stjórnin mun taka þátt í þessum fundi.
-
8. Önnur mál. Rætt um að fara með Íslandsmót í tvímenningi á hótel, Ólöf mun kanna kostnað, ákveðið að hætta gefa stóra bikara, gefa frekar gjafabréf. Næsti stjórnarfundur ákveðinn 12. Febrúar kl. 17.30
Fleira ekki gert fundi slitið kl. 18.30