Stjórnarfundur 9.október 2019
föstudagur, 11. október 2019
Fundargerð stjórnarfundar Bridgesambands Íslands 9. okt
2019 - kl. 17:30.
Mætt eru: Jafet,Gunnar Björn, Sigurður Páll, Guðný, Ingibjörg
og Ólöf. Ingimundur og Birkir Jón boðuðu forföll
2. Ársþing 20. Október kl. 15.00, ársreikningur er
tilbúinn, Jafet og Ólöf ganga frá ársskýrslu, Jafet hafði sent
stjórnarmönnum drög að sína skýrslu. Fyrir liggur að Birkir Jón og
Ingibjörg munu hætta í stjórninni Jafet hefur rætt við tvo aðila að
taka þeirra sæti.
3. Landsliðamál, Jafet fór yfir stöðuna, Anton er
með áætlun fyrir opna flokkinn, kvennaflokkur, Guðmundur Páll tekur
æfingar með hópi sem sýnt hefur áhuga að spila. Valið í
febrúar.
Jafet átti fund með Birni Eysteinssyni varðandi heldri
mannaflokkinn, vantar mann til að leiða undirbúning. Rætt um
nokkur nöfn og mun Jafet setja sig í samband við þá.
-
4. Evrópamótið á Madeira júni 2020, tilkynna þarf þáttöku fyrir
1. Mars og síðan senda liðsskipan fyrir 1. maí
-
5. Reykjavík Bridge Festival. Undirbúningur fyrir næstu hátíð
gengur vel. Jafet átti fund með forsvarsmanni Hörpu og vildi kanna
að flýta hátíðinni árið 2021 um 1 viku, það getur reynst erfitt.
Málið er ekki eins brýnt og áður þar sem búið er setja Monakó
vetraraleikana síðar í febrúar og mars. Eftir umræðu var ákveðið að
óska eftir sömu dagsetningu næstu árin, Jafet falið að óska eftir
samningi við Hörpu til næstu 7 ár frá árinu 2021
-
6. Endurbætur á Síðumúlanum, á næstu árum verður nauðsynlegt að
laga húsnæðið að utan, leita enn að nýju húsnæði en það er mjög
vandfundið
-
7. Keppnisstjórar vantar fleiri. Bjóða þeim á námskeið, Ólöf
setur tilkynningu inn á Bridgespjallið
-
8. Kynningarmál, Jafet uipplýsti að hann hefði verið á Bylgjunni
á mánudagsmorgun og fengið góðan tíma, Verður á Rás 1 í næstu viku
og sennilega líka á K100
-
9. Önnur mál. Ný heimasíða er á lokametrunum og ætti að komast í
loftið á ársþinginu sem verður mikið fagnaðarefni. Síðasti
stjórnarfundur Ingibjargar, Jafet þakkaði henni vel unnin
störf.
Fundi slitið kl. 18:30, næsti fundur ákveðinn eftir ársþing
JSÓ