Stjórnarfundur 2.sept 2019
Mætt eru Jafet, Gunnar Björn, Sigurður Páll, Ingimundur og Ólöf. Guðný mætti kl. 17:45. Ingibjörg hafði boðað forföll og Birkir Jón varð að tilkynna forföll á síðustu stundu.
•1. Fundargerð síðasta fundar var samþykkt og er á netinu.
-
2. Starfið í vetur. Mótaskráin liggur fyrir og helsta breytingin er seinkun á undanúrslitum og úrslitum í sveitakeppni en það er vegna vandræða með hentugt húsnæði. En með þessu er hægt að fá inni á Hótel Natura.
-
3. Ársþingið verður haldið 20 október og hefst klukkan 15:00. Jafet hefur ákveðið að gefa kost á sér í forsetastól næsta árið.
-
4. Landsliðsmál. Anton sér um opna flokkinn framyfir EM2020 á Madeira. Auglýst verður eftir áhugasömum pörum í kvennaflokki. Kvennaæfingar eru hafnar þó þær séu ekki beint landsliðstengdar þá er þetta jákvætt og margar mættu á fyrstu æfingu.Nokkur áhugi er á Senioraflokknum og líklega verður slíkt lið styrkt með einhverjum hætti. Jafet kem með nöfn á 6 mönnum sem hann ætlar að kalla saman varðandi æfingar og val á senioraliðinu. Samþykkt að senda 3 landslið í opna- kvenna- og senioraflokknum á Evrópumótið á Madeira í júní 2020.
-
5. Reykjavík Bridgefestival. Undirbúningur gengur vel.
-
6. Norðurlandamót 2019. Ísland vann opna flokkinn með frábærum lokaspretti. Forseti og framkvæmdastjóri sátu fund með norrænum kollegum sínum samhliða mótinu. Norðulandasamstarfið gengur vel.
-
7. Endurbætur á húsnæði. Jafet fór yfir stöðuna, styttist í lokauppgjör.
-
8. Keppnisstjórar. Illa gegnur að fá keppnisstjóra til starfa, eru einfaldlega of fáir. Rætt um hvernig hægt væri að fá fleiri til starfa, auglýst verður á Facebook til að byrja með. Samþykkt að endurskoða greiðslur til keppnisstjórnar , Ólöf og Jafet gera það.
-
9. Kynningarmál. Auglýst verður í blöðum eins og vant er á haustin og bridgeskólinn með, vont er að fá fjölmiðla til að skrifa fréttir um bridge. Nýja heimasíðan er nánast tilbúin og verður opnuð á ársþinginu. Stefnt er að því að bjóða upp á æfingar fyrir krakka í vetur, bæði þá sem komu á sumarnámskeiðið okkar og vonandi fleiri.
-
10. Fundi slitið um kl. 18:00. Næsti fundur verður snemma í október, nánari dagsetning auglýst síðar.