Stjórnarfundur 16.okt. 2018
fimmtudagur, 18. október 2018
Stjórnarfundur í
Bridgesambandi Íslands
haldinn 16. október, 2018 kl.
17.30
Mættir: Jafet, Ólöf, Birkir Jón, Árni
Már, Ingimundur og
Ingibjörg.
Dagskrá
-
1. Fundargerð síðasta fundar, samþykkt án
athugasemda
-
2. Starfsemin i vetur - Bridgeskólinn. Aðsókn í
Bridgeskólann s.l. starfsár var með ágætum og sóttu kvenmenn heldur
betur skólann en karlar. Ungir nemendur (undir 25) sóttu einnig
skólann prýðilega svo átak BSÍ hefur eitthvað haft að segja.
-
3. Breytingar á húsnæði. Skoðaðar voru tillögur og
kostnaðaráætlun að breytingu á húsnæði Bridgesambandsins og var
fólk sammála því að tímabært væri að lagfæra eldhús og WC aðstöðu
ásamt almennu viðhaldi. Var framkvæmdastjóra gefin heimild til að
vinna samkvæmt þeirri fjárhagsáætlun og tillögum sem kynnt var og
skoða jafnframt þær tillögur sem komu fram á fundinum.
-
4. Ársþing sambandsins 21. október. Búið er að senda
til stjórnar punkta frá forseta sambandsins vegna starfsemi s.l.
árs. Bridgesamband Íslands er 70 ára í ár.
-
5. Reykjavíkur Bridgehátíð í Hörpu í febrúar 2019.
Undirbúningur vegna Bridgehátíðar er þegar hafinn og búið að
undirstinga fjölmiðla og verið að skoða hver mun setja hátíðina.
Zia hefur gefið grænt ljós á að mæta með einhverja góða spilara með
sér.
•6.
Landsliðsmál. Umræða var tekin um stöðu landsliðsmála.
•7. Önnur
mál.
-
Skjanna mál svo kallað var til umræðu og var stjórn sammála um
að BSÍ héldi sig við áður útgefna niðurstöðu. Skjanni fellur þar
sem þeir mættu ekki til leiks.
-
Kaup á spilum, verið er að skoða með kostun á kaupum á
spilum.
-
Árni Már Björnsson hættir í stjórn á næsta ársþingi og þakkaði
samstarfið og samvinnu stjórnar.